Þorlákshöfn
Hvernig virka skólphreinsistöðvar?
Smelltu á skref til að sjá hvað gerist
Skólpið er síað í hreinsistöðinni áður en það fer út í sjó. Sían grípur ruslið svo sjórinn og svarta fjaran haldast hrein og fiskarnir synda áhyggjulausir.
1. Heimili
Allt vatn sem við notum heima, úr klósetti, vaski, sturtu og þvottavél, kallast skólp. Það rennur niður í fráveitulagnir hússins og blandast þar saman. Í því er bæði vatn, úrgangur og stundum rusl sem á ekki heima þar, eins og blautklútar.
Skólpið er síað í hreinsistöðinni áður en það fer út í sjó. Sían grípur ruslið svo sjórinn og svarta fjaran haldast hrein og fiskarnir synda áhyggjulausir.